Enginn möguleiki á umræðu

Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, er ósátt með þann litla …
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, er ósátt með þann litla tíma sem mun fara í umræður á Alþingi um þriðju rammaáætlun. Ljósmynd/Landvernd

„Það verður ekkert tækifæri til að ræða þessar risastóru breytingar sem verið er að gera og það er bæði ófaglegt og ólýðræðislegt,“ segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, um nýja rammaáætlun.

„Þetta er ferli sem er búið að taka kannski tíu ár frá því að rammaáætlun þrjú tók til starfa. Nú gerir meirihluti um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar miklar breytingar og það er gert algjörlega án möguleika á umræðu því þau settu þetta á vefinn í gær og það er ekki nema tveir til þrír dagar eftir af Alþingi,“ segir Auður.

Þriðji áfangi ramm­a­áætl­un­ar um vernd og ork­u­nýt­ingu landsvæða hef­ur hlotið af­greiðslu inn­an um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar Alþing­is en nefnd­in af­greiddi þings­álykt­un­ar­till­lögu um ramm­a­áætl­un­ina á föstudaginn.

Rökstuðningur heldur ekki vatni

„Okkur finnst þetta vera ófagleg vinnubrögð. Grundvöllur rammaáætlunar er að taka ákvarðanir á faglegum grunni með aðkomu fjölbreytts hóps aðila og sérfræðinga. Þetta er mjög bagalegt. Það er búið að meta þessi landsvæði – annars vegar jökulárnar í Skagafirði og hins vegar Þjórsárver – þannig að þau eru mjög verðmæt og þau eiga að fara í verndarflokk og það á að friða þau fyrir orkuvinnslu,“ segir Auður.

„Í áliti meirihluta um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar kemur ekki fram neinn rökstuðningur sem heldur vatni gegn þessari faglegu vinnu sem hefur þó farið fram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert