Þriðja tilfelli apabólu hér á landi

Apabóla hefur verið að skjóta upp kollinum í Bandaríkjunum og …
Apabóla hefur verið að skjóta upp kollinum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Nú um helgina, eða þann 11. júní, greindist hér þriðji einstaklingurinn með apabólu.

Þetta kemur fram á vef landlæknis.

Um er að ræða karlmann á miðjum aldri sem búsettur er á höfuðborgarsvæðinu og er smitið rakið til ferðar í Evrópu.

Viðkomandi er ekki alvarlega veikur og dvelur heima í einangrun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert