Gómaður á 116 kílómetra hraða í borginni

Frá Sæbraut. Mynd úr safni.
Frá Sæbraut. Mynd úr safni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Brot 343 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 9. júní til mánudagsins 13. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg.

Á rúmlega fjórum sólarhringum fóru 24.111 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 116.

Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert