Kostnaður við dýpkun þrefalt meiri á næstu árum

Kostnaður við dýpkun hefur verið töluvert meiri en gert ráð …
Kostnaður við dýpkun hefur verið töluvert meiri en gert ráð fyrir. mbl.is/Árni Sæberg

Kostnaður við viðhaldsdýpkun Landeyjahafnarinnar á árunum 2011 til 2020 var töluvert meiri en áætlað hafði verið. Á tímabilinu var kostnaðurinn 227 til 625 milljónir króna á ári í stað 60 milljóna króna. Þetta kemur fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á framkvæmda- og rekstrarkostnaði Landeyjahafnar.

Gagnrýnt er að kostnaður við viðhaldsdýpkun hafi verið færður sem fjárfestingakostnaður en ekki sem rekstrarkostnaður Landeyjahafnar eins og vera ber. Heildarkostnaður við Landeyjahöfn á árunum 2005 til 2020 var um 8,2 milljarðar króna.

Áætlað er að kostnaður við dýpkun Landeyjahafnar á tímabilinu 2021 til 2024 verði þrefaldur miðað við upphaflega áætlun, en framlög vegna dýpkunar hafnarinnar eru áætluð 334 milljónir króna á ári á tímabilinu.

Þarf að skoða hvort aðgerða sé þörf 

Í skýrslunni bendir Ríkisendurskoðun á að áætlanagerð þurfi og vera raunsæ og að framlög á samgönguáætlun og fjárlögum hverju sinni þurfi að vera í takt við raunverulegan kostnað við viðhaldsdýpkun. 

Þá telur Ríkisendurskoðun nauðsynlegt að ráðist verði í heildstæða úttekt á Landeyjahöfn svo fá megi úr því skorið hvað raunverulegar endurbætur kosta og hvort fýsilegt sé að grípa til aðgerða sem bæta nýtingu hafnarinnar í stað þess að kosta miklu til viðhaldsdýpkunar á ári hverju.

Enn fremur telur Ríkisendurskoðun að Vegagerðin hefði þurft að ígrunda betur kaup á botndælubúnaði fyrir Landeyjahöfn. Í ljós kom að afköst búnaðarins myndu ekki réttlæta kostnað við uppsetningu og var því hætt við verkið eftir að búnaðurinn hafði verið keyptur.

Um var að ræða kostnaðarsama fjárfestingu sem ekki reyndist grundvöllur fyrir, þótt eitthvað af framkvæmdum henni tengdum kunni að nýtast til frambúðar við Landeyjahöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert