Fimm þingmál forsætisráðherra afgreidd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Hákon

Tvö frumvörp, annars vegar um fjölgun mismununarþátta í lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og hins vegar um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna, voru samþykkt á Alþingi í nótt.

Þrjú þingmál ráðherra til viðbótar voru afgreidd áður en fundum Alþingis var frestað aðfararnótt fimmtudags, að því sem fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 

Gildissvið laganna útvíkkað

Með því að fjölga mismunarþáttum í lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna er þeim mismununarþáttum sem lögin ná til, fjölgað. 

Þannig gilda lögin ekki eingöngu um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, heldur einnig óháð trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins utan vinnumarkaðar.

Þá breytist heiti laganna í lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar. Sérstök lög gilda um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Forkaupsréttur ríkis að friðlýstum minjum

Með breytingum á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna er forkaupsrétti ríkisins að landi þar sem eru friðlýstar menningarminjar, komið á.

Þegar er að finna í lögum sambærileg ákvæði er varða jarðir og landareignir sem eru að hluta til eða öllu leyti á náttúruminjaskrá. Þá verða sett ítarlegri ákvæði um sameign á landi auk fleiri breytinga sem snúa að eignarráði, ráðstöfun og nýtingu fasteigna, með áherslu á land og landgæði.

Aðgerðaráætlun, minnisvarði og vöggustofunefnd

Þrjú þingmál ráðherra til viðbótar voru afgreidd áður en fundum Alþingis var frestað aðfararnótt fimmtudags.

Fyrr í vikunni voru samþykktar tvær þingsályktunartillögur forsætisráðherra. Annars vegar um fyrstu aðgerðaáætlunina í málefnum hinsegin fólks og hins vegar um gerð minnisvarða um eldgosið á Heimaey í tilefni þess að á næsta ári verða liðin 50 ár frá gosinu.

Þá var frumvarp um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa samþykkt á Alþingi í síðustu viku. Er um að ræða nauðsynlegar lagabreytingar til að umrædd rannsókn geti farið fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert