Fjölgaði um sex síðastliðinn sólarhring

Einn er á gjörgæslu og Landspítali er á óvissustigi.
Einn er á gjörgæslu og Landspítali er á óvissustigi. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Á Landspítala liggja nú 33 sjúklingar með Covid-19. Einn þeirra er á gjörgæslu. 

Í gær voru 27 einstaklingar inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 og því hefur þeim fjölgað um sex frá í gær.

Þá hefur þeim á gjörgæslu fækkað um einn, en tveir Covid-smitaðir voru á gjörgæsludeild í gær. 

Covid-göngudeild opnar á morgun

Þá mun Covid-19 gögnudeild opna í Birkiborg á morgun, 18. júní. Áformaður opnunartími verður frá klukkan ellefu að morgni til sex að kvöldi. 

Landspítali er á óvissustigi að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu spítalans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert