Réðst á vinnufélaga með barefli

Atvikið átti sér stað á Seltjarnarnesi.
Atvikið átti sér stað á Seltjarnarnesi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Tveir voru fluttir á slysadeild og einn handtekinn eftir að til átaka kom milli byggingaverkamanna sem voru við vinnu á Seltjarnarnesi á ellefta tímanum í morgun.

Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við mbl.is en fyrst var greint frá á Vísi.

Jóhann segir að bareflum hafi verið beitt og árásarmaðurinn handtekinn.

Ekki var vitað um líðan hinna slösuðu annað en að þeir voru með meðvitund þegar þeir voru fluttir á slysadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert