Stjórnvöld stuðlað að uppbyggingu á 3.000 leiguíbúðum

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra á opnum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra á opnum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. mbl.is/Árni Sæberg

Frá árinu 2016, þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi, hafa ríki og sveitarfélög úthlutað framlögum að fjárhæð um 30 milljörðum til uppbyggingar á yfir 3.000 hagkvæmum leiguíbúðum víðs vegar um landið.

Þetta kemur fram í tilkynningu en úthlutun stofnframlaga árið 2022 var kynnt á opnum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) í dag.

Í fyrri úthlutun ársins 2022 úthlutaði HMS 2,6 milljörðum til uppbyggingar á 328 íbúðum. Því til viðbótar kemur framlag frá sveitarfélögum. Leiguíbúðirnar dreifast víða um land og hefur hlutfall íbúða á landsbyggðinni aldrei verið jafn hátt, eða 46%. Úthlutun ársins nær til 328 íbúða. Þar af stendur til að byggja 279 nýjar íbúðir og kaupa 49 nýjar og eldri íbúðir. Allar verða þær að standast kröfur um hagkvæmni, en með því eru stjórnvöld að skapa hvata fyrir aukið framboð slíkra íbúða.

Frá fundinum.
Frá fundinum. mbl.is/Árni Sæberg

Í tilkynningunni segir að ýmsar kröfur séu gerðar til almennra íbúða. Þær þurfi að uppfylla skilyrði um hagkvæmni og eru ætlaðar tekju- og eignalágum. Með uppbyggingu á slíkum íbúðum er aðgengi aukið að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði með áherslu á nýbyggingar og fjölgun íbúða.

Mikið hagsmunamál að stuðla að bættri stöðu á leigumarkaði

„Það er ríkisstjórninni mikið hagsmunamál að stuðla að bættri stöðu á leigumarkaði. Í gegnum stofnframlög hafa nú þegar verið byggðar 1.550 íbúðir og er annað eins í byggingu. Almenna íbúðakerfið hefur sýnt sig sem úrræði, þar sem boðið er upp á hagstæða og örugga langtímaleigu, sem stuðlar að heilbrigðari leigumarkaði og auknu húsnæðisöryggi.“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Af þeim ríflega 3.000 íbúðum sem hlotið hafa stofnframlög, hafa 1.552 nú þegar verið teknar í notkun.

„Stofnframlögin hafa gert okkur kleift að búa til öflugt leigufélag með sífellt fjölgandi leiguíbúðum, þar sem tryggt er aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði til langtímaleigu á hagkvæmu leiguverði. Við höfum fengið úthlutað stofnframlögum til byggingar á 1.126 íbúðum og þar af tekið í notkun 628 íbúðir.“ segir Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert