Guðrún Aspelund nýr sóttvarnalæknir

Guðrún Aspelund, nýr sóttvarnalæknir.
Guðrún Aspelund, nýr sóttvarnalæknir. Ljósmynd/Landlæknir

Guðrún Aspelund, yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis, hefur verið ráðin sóttvarnalæknir við embættið frá og með 1. september næstkomandi en hún var sú eina sem sótti um starfið. Þórólfur Guðnason, fráfarandi sóttvarnalæknir, sagði starfi sínu lausu í vor.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis.

„Ég hef öðlast góða sýn á starf sóttvarnarlæknis undanfarin ár og sé í starfinu tækifæri til að láta gott af mér leiða. Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan,“ er haft eftir Guðrúnu í tilkynningunni.

Þar er jafnframt haft eftir Ölmu D. Möller landlækni:

„Ég er mjög ánægð með ráðningu Guðrúnar í starf sóttvarnalæknis. Hún er með góða menntun og reynslu sem mun nýtast en hefur einnig til að bera nauðsynlega eiginleika fyrir krefjandi starf sóttvarnalæknis, m.a. góða samskiptahæfni, vinnusemi, skipulagshæfni, sjálfstæði og yfirvegun.“

Hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu

Í tilkynningunni segir að Guðrún hafi embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands og þá hafi hún sótt sér sérfræðimenntun í bæði almennum skurðlækningum og barnaskurðlækningum en hún var lektor og barnaskurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017. 

Guðrún, sem jafnframt hefur lokið meistaranámi í líftölfræði, hefur góða þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra og hefur að auki komið að birtingu vísindagreina um smitsjúkdóma og sýklalyfjanotkun. Hún hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu á verkefnum sóttvarnasviðs í starfi sínu undanfarin ár. Þá hefur hún einnig reynslu og stundar nám á sviði opinberrar stjórnsýslu,“ segir í tilkynningu embættis landlæknis. 

Þar kemur fram að starf sóttvarnalæknis hafi verið auglýst 13. maí síðastliðinn en Þórólfur lætur af störfum í byrjun september 2022.

„Auglýsingin var birt á Starfatorgi og í fjölmiðlum og var umsóknarfrestur til og með 13. júní. Ekki bárust fleiri umsóknir en frá Guðrúnu. Ráðning var ákveðin í kjölfar mats á umsókn og ítarlegs viðtals en með landlækni í því ferli voru Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Unnur Valdimarsdóttur prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og Þórgunnur Hjaltadóttir sviðsstjóri hjá embætti landlæknis.“

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert