Svikahrappar taka fyrir fólk með @simnet.is

AFP

Fjöldi tölvupósta og skilaboða frá svikahröppum heldur áfram að dynja á Íslendingum og mikið álag hefur verið í þjónustuveri SaltPay vegna símtala frá áhyggjufullu fólki. Nema ábendingarnar, sem borist hafa síðustu daga, nokkur hundruðum. Mörg þeirra eru með netföng sem enda á @simnet.is.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SaltPay. 

Tekið er fram, að umræddir svikapóstar séu sagðir vera frá Borgun, forvera SaltPay.

Skrifstofur SaltPay í Katrínartúni í Reykjavík.
Skrifstofur SaltPay í Katrínartúni í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

„Í þeim kemur fram að greiðsla frá viðtakanda hafi ekki staðist öryggisathugun og hafi henni því verið frestað. Neðst í póstinum stendur að greiðslan sé vegna gistingar og að kaupmaðurinn sé Síminn. Í póstinum er hlekkur þar sem viðtakandi á að gefa upp kortanúmer og öryggisnúmer greiðslukorts. Sé það hins vegar gert þá á viðkomandi það á hættu að háar fjárhæðir verði teknar út af kortinu í kjölfarið,“ segir í tilkynningunni. 

Fólk fari gætilega á næstu dögum - umtalsverðar fjárhæðir í húfi

Þá kemur einnig fram, að sérfræðingar SaltPay hvetji fólk til að fara gætilega á næstu dögum. Búast megi við áframhaldandi svikasendingum af þessu tagi þar sem dæmi séu um að fólk hafi tapað umtalsverðum fjárhæðum eftir að hafa látið gabbast. Það sé því eftir nokkru að slægjast fyrir svikarana. Þá segir, að öryggisteymi hér á landi hafi óskað eftir að lokað verði á vefsíðurnar sem vísað er á í póstunum.

Best að eyða póstinum eða skilaboðunum strax

„SaltPay vill ítreka að fyrirtækið biður aldrei um kortaupplýsingar í tölvupósti, SMS eða símtali. Þau sem fá senda pósta af þessu tagi eru hvött til að opna þá ekki og enn síður smella á hlekki í þeim og gefa upp kortaupplýsingar. Einnig vill SaltPay hvetja fólk til að vara sig á öllum óumbeðnum skilaboðum, hringingum eða tölvupóstum þar sem óskað er eftir kortaupplýsingum. Best er að eyða póstinum eða smáskilaboðunum strax.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert