Afhentu kröfugerð fyrir komandi kjaraviðræður

Fulltrúar SGS segjast ekki una því að vaxandi verðbólga verði …
Fulltrúar SGS segjast ekki una því að vaxandi verðbólga verði sett á herðar félagsmanna. mbl.is/ Árni Sæberg

Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands afhenti í dag fulltrúum Samtaka atvinnulífsins kröfugerð sambandsins vegna kjarasamninga á almennum markaði. Krefst hún krónutöluhækkana og aðgerða SA og stjórnvalda til að tryggja kaupmátt félagsmanna.

Fundurinn var haldinn í Húsi atvinnulífsins. Kjarasamningar verða lausir þann 1. nóvember næstkomandi en gert er ráð fyrir að formlegar viðræður hefjist um miðjan ágúst. Á fundinum var rætt um fyrirkomlag komandi viðræðna og þau úrlausnarefni sem liggja fyrir samningsaðilum. 

Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands byggist á grunni kjarasamnings SGS og SA sem tók gildi þann 1. apríl 2019. Byggist hún þannig á kröfugerðum sautján af aðildarfélögum SGS, sem samþykktar voru á félagslegum vettvangi eftir vandaða vinnu einstakra félaga.

Krónutöluhækkanir skili mestum árangri

Lögð er áhersla á hækkun lægstu launa og að tryggja kaupmátt launafólks. SGS krefst þess að krónutöluhækkunum verði beitt á launataxta, líkt og í núgildandi kjarasamningi. Slíkar hækkanir skili launafólki mestum árangri.

„Við gerð síðustu kjarasamninga var horft til þess að samningarnir leiddu af sér lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur nú í þrígang hækkað stýrivexti og Landsbankinn spáir því að þeir verði komnir í 4,25% árið 2023, eða á sama stað og þeir voru við gerð Lífskjarasamningsins vorið 2019.“

Fulltrúar SGS segjast ekki una því að vaxandi verðbólga verði sett á herðar félagsmanna, enda sé hún til komin „vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, og erlendra hækkana.“

Tryggja þurfi kaupmátt

Samtök launafólks sömdu um það í síðustu samningum að auka ráðstöfunartekjur launafólks heildstætt, með krónutöluhækkunum, vaxtalækkunum og aðgerðum af hálfu stjórnvalda.

Telur SGS aðstæður þær, sem nú séu í samfélaginu og efnahagsumhverfinu, kalla á svipaða aðferðafræði, víðtækt samstarf og samráð til að bregðast við miklum vanda á húsnæðismarkaði, tryggja kaupmátt og öfluga grunnþjónustu um land allt.

„Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verðhækkanir og mikill vandi á húsnæðismarkaði kalla á að stjórnvöld og SA taki höndum saman við samtök launafólks til að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunnþjónustu um land allt.“

Tímalengd samningsins mun ráðast af þeim aðstæðum sem uppi verða í efnahagslífinu í haust og innihaldi samningsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert