Hjólreiðamaðurinn slasaðist en hinn hvarf

Hjólreiðamaðurinn slasaðist. Sá á hlaupahjólinu lét sig hverfa. Myndin er …
Hjólreiðamaðurinn slasaðist. Sá á hlaupahjólinu lét sig hverfa. Myndin er úr safni.

Lögreglunni í Kópavogi og Breiðholti barst tilkynning um óhapp í undirgöngum laust eftir klukkan sex í gærkvöldi. Þá höfðu tveir menn skollið saman, annar á reiðhjóli og hinn á rafmagnshlaupahjóli. 

Reiðhjólamaðurinn slasaðist og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku. Aðilinn á rafhlaupahjólinu lét sig hverfa af vettvangi,“ segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Stuttu síðar varð þriggja bíla árekstur sem sama lögreglustöð sinnti. „Einn ökumaður kvartaði undan verkjum og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku,“ segir í dagbókinni. 

Þar kemur jafnframt fram að nokkrir ökumenn hafi verið handteknir fyrir ætlaðan akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. 

Sömuleiðis barst tilkynning um tvær líkamsárásir, eitt innbrot og eitt hugsanlegt innbrot. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert