Ísland líklegur gestgjafi leiðtogafundar Evrópuráðs

Mikill áhugi er fyrir því að fundurinn verði haldinn á …
Mikill áhugi er fyrir því að fundurinn verði haldinn á Íslandi.

Ísland er líklegur gestgjafi þegar sögulegur leiðtogafundur Evrópuráðsins fer fram á næsta ári í fjórða skipti frá upphafi. Slíkur fundur hefur ekki farið fram í 25 ár og er því um stórviðburð að ræða, mögulega einn þann stærsta sem haldinn hefur verið á Íslandi ef af því verður, segir Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins. Hann er staddur í Strassborg þar sem sumarþingi Evrópuráðsþingsins lauk í gær.

Alls eiga 46 ríki aðild að Evrópuráðinu og fer hvert þeirra með formennsku í ráðinu sex mánuði í senn. Munu Íslendingar taka við því embætti af Írum í nóvember á þessu ári.

Á fundinum verður framtíð Evrópuráðsins til umræðu í ljósi breyttrar stöðu alþjóðamála, auk þess sem farið verður yfir hvert framtíð Evrópu stefnir og hvernig hægt sé að þétta raðirnar um sameiginleg gildi Evrópuríkjanna.

Bjarni Jónsson er formaður utanríkismálanefndar og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins.
Bjarni Jónsson er formaður utanríkismálanefndar og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins.

Undirbúningur leiðtogafundarins er nú kominn á fullt skrið og mun fundurinn að öllum líkindum fara fram í maí á næsta ári. Ísland hefur boðist til að vera gestgjafi og er mikill áhugi á því innan Evrópuráðsins og Evrópuráðsþingsins, að sögn Bjarna.

„Þá ekki síst í sögulegu ljósi. Ísland hefur góða ímynd á alþjóðavettvangi. Stigin voru mikilvæg skref til að ljúka kalda stríðinu með leiðtogafundi á Íslandi á sínum tíma. Við höfum sterka lýðræðishefð og höfum talað fyrir friðsamlegum úrlausnum á alþjóðavettvangi og þeim grunngildum sem Evrópuráðið byggir á.“

Þá var einnig stofnuð sérnefnd á fundi framkvæmdastjórnar Evrópuráðsþingsins í gærmorgun sem á að endurskoða starfsemi Evrópuráðsins og skila tillögum um framtíð þess. Mun Bjarni skipa sæti í nefndinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert