Komst á brott eftir rán í Nettó

Frá vettvangi. Lögreglan rannsakar nú málið.
Frá vettvangi. Lögreglan rannsakar nú málið. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Matvöruverslunin Nettó í Lágmúla var rænd nú fyrir skömmu. Ræninginn komst á brott með peninga. 

Að sögn vitna sló ræninginn starfsmann á kassa lauslega áður en hann hvarf á brott með ránsfenginn.

Skelkaðir vegna ránsins

Starfsmaðurinn er ekki slasaður en viðstaddir urðu mjög skelkaðir eftir atburðarásina.

Ræninginn mun ekki hafa verið vopnaður.

Lögreglan er nú á staðnum að rannsaka málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert