Gekk um með kylfu og leitaði hefnda

Lögreglan haldlagði kylfuna og ræddi við manninn.
Lögreglan haldlagði kylfuna og ræddi við manninn. mbl.is/​Hari

Lögreglan hafði afskipti að ölvuðum manni með stóra kylfu í miðborginni um klukkan tvö í nótt.

Maðurinn sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás og að hann ætlaði að leita hefnda með kylfunni, að fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn var handtekinn grunaður um brot á vopnalögum og kylfan haldlögð. Hann var þó látinn laus eftir samtal við lögreglu og sagðist ætla að fara heim til sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert