Tíðni sjálfsvíga áþekk tölum fyrri ára

Fjöldi sjálfsvíga árið 2021 var 38, eða 10,2 á hverja 100.000 íbúa, að því er kemur fram á vef landlæknis.

Þá segir að tölurnar séu áþekkar tölum fyrri ára en að meðaltali voru 38 sjálfsvíg á ári síðustu fimm árin (2017-2021), eða 10,7 á hverja 100.00 íbúa. Ítarlegri tölfræði um sjálfsvíg má finna í gagnvirku mælaborði og töflu á vef landlæknis.

Byggir á upplýsingum um dánarorsakir

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á upplýsingum um dánarorsakir einstaklinga með lögheimili á Íslandi við andlát sem skráðar eru í dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði.

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig uppá ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.  

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert