Vilja að ESB líti til Norðurlanda

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Nýja evrópska matvælamerkingin verður að vera byggð á vísindalegum grunni og viðskiptalegir hagsmunir mega ekki ráða för,“ segir í bréfi norrænna ráðherra til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB).

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er á meðal þeirra sem undirrita bréfið.

Í fréttatilkynningu um málið kemur fram að Evrópusambandið vinni nú að því að koma á skyldubundinni merkingu allra matvæla sem ætlað er að leiðbeina neytendum við að velja hollari matvæli.

Norrænu ráðherrarnir virðast, miðað við bréfið, hafa áhyggjur af því að skyldubindin merking á vegum ESB gæti keppt við núverandi innlendar og svæðisbundnar merkingar, t.d. norrænu skráargatsmerkinguna sem hefur verið notuð á Norðurlöndum í 30 ár.

„Nú vonast norrænir ráðherrar sem fara með matvæla- og heilbrigðismál að norræna merkingarkerfið geti verið fyrirmynd hins evrópska.“

, þeirra á meðal Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, 

Þetta segja norrænir ráðherrar sem fara með málefni matvæla í sameiginlegu bréfi til ESB.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert