Nýir kaupendur að Ægi og Tý

Ægir og Týr í Sundahöfn.
Ægir og Týr í Sundahöfn. mbl.is/sisi

Verið er að ganga frá kaupsamningi við nýjan kaupanda að varðskipunum Ægi og Tý og búist er við að ljúka ferlinu við lok vikunnar. Þetta staðfestir Helena Rós Sigmarsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkiskaupum. „Það er samt ekkert í höfn fyrr en blek er komið á blað,“ segir hún, en fallið var frá öðru kauptilboði í skipin fyrir mánuði.

Ríkiskaup auglýstu skipin til sölu síðasta haust og bárust þá tvö tilboð í bæði skipin. Hið hærra var upp á 125 milljónir en hið lægra upp á 18 milljónir.

Ekki varð af kaupum í samræmi við tilboðið sem var samþykkt vegna þess að sá kaupandi hafði sett tiltekna fyrirvara sem skipin stóðust ekki og hann gat ekki fellt út, að sögn Helenu. Þeir kaupendur sem nú hyggjast festa kaup á varðskipunum tveimur eru ekki þeir sömu og gerðu kauptilboð upprunalega, sem ekki var samþykkt þá.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Uppfært kl. 10.20:

Ranghermt var í fréttinni að mögulegir kaupendur nú væru þeir sömu og áður höfðu gert tilboð í varðskipin. Um nýjan aðila er að ræða, segir Helena Rósa í athugasemd til mbl.is. Þetta hefur verið lagfært og beðist er velvirðingar á rangherminu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert