Næturstrætó snýr aftur

Næturstrætóinn snýr aftur um helgina.
Næturstrætóinn snýr aftur um helgina. mbl.is/Hjörtur

Næturstrætó úr miðbæ Reykjavíkur snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé. Strætóinn mun aka á aðfaranóttum laugardags og sunnudags, að minnsta kosti fram í september.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

„Ný stjórn Strætó kom saman á föstudaginn síðasta og það var mikill samhugur í stjórnarmönnum um að láta næturstrætó aka úr miðbænum um helgar. Stjórnin er með þessu að svara ákalli íbúa höfuðborgarsvæðisins um aukna þjónustu og fjölbreyttari samgöngukosti út úr miðborg Reykjavíkur um helgar.“

Þá kemur fram að leitast verði við að nota eins umhverfisvæna vagna og kostur er.

Til reynslu fram í september

Næturstrætó um helgar verður til reynslu fram í september, en þá verður þjónustan metin á ný út frá notkun leiðanna og ánægju viðskiptavina en leiðunum hefur fjölgað um tvær frá árinu 2020 og verða þær nú 7 talsins.

Eins og áður segir mun strætóinn aka úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags. Ekki verður hægt að taka strætóinn í átt að miðbænum, aðeins úr honum.

Vagnarnir munu ekki aka samkvæmt hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfarartími úr miðbænum og munu vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna.

Posi um borð

Viðskiptavinir sem nota greiðslumiða á vegum Strætó, þ.e. Klapp kort, Klapp app, Klappi tíu, Strætókort eða Strætóapp, greiða sama fargjald og er greitt yfir daginn en einnig er hægt að nota mánaðar- og árskort um borð í næturstrætó.

Þá segir að einnig verði gerð tilraun með að hafa posa um borð. Þeir sem vilja staðgreiða með greiðslukorti eða greiðufé greiða þá 1.000 kr. en stakt fargjald fyrir fullorðinn með greiðslumiðum Strætó eru 490 kr.

Eftirfarandi leiðir aka úr miðbæ Reykjavíkur um helgar:

  • Leið 101: Hafnarfjörður ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:20, 02:25 og 03:45. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Snorrabraut, Kringlumýrarbraut og inn í Hamraborg. Eftir það ekur leiðin Hafnarfjarðarveg, Reykjavíkurveg, Lækjargötu (í Hafnarfirði), Hringbraut (í Hafnarfirði), Strandgötu, Ásbraut og inn á Velli.
  • Leið 102: Kópavogur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:40, 02:40 og 03:40. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Eftir það fer leiðin um Smára, Lindir, Sali, Kóra og Hvörf í Kópavogi.
  • Leið 103: Breiðholt ekur frá Hlemmi kl. 01:30, 02:40 og 03:50. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, Háskóla Íslands, um Bústaðarveg og upp í Mjódd. Eftir viðkomu í Mjódd þá ekur leiðin hring í Breiðholti um Skóga, Sel, Fell, Hóla og Bakka.
  • Leið 104: Úlfarsárdalur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:25, 02:30 og 03:35. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Vesturlandsveg, inn í Grafarholt og Úlfarsárdal.
  • Leið 105: Norðlingaholt ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:29, 02:29 og 03:29. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Borgartún, Sæbraut, Vesturlandsveg, inn í Árbæ, Selás og Norðlingaholt. 
  • Leið 106: Mosfellsbær ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:34, 02:34 og 03:34. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Vesturlandsveg, upp Höfðabakka og inn í Grafarvog. Þar mun hún aka í gegnum Folda, Rima- og Staðahverfið og inn í Mosfellsbæ.
  • Leið 107: Seltjarnarnes ekur frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda.
Leiðirnar sem strætóarnir munu aka.
Leiðirnar sem strætóarnir munu aka. Ljósmynd/Strætó
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert