Lægðardrag yfir eða í grennd við landið út júlí

Ekki er von evrópskri hitabylgju til landsisn í júlí samkvæmt …
Ekki er von evrópskri hitabylgju til landsisn í júlí samkvæmt Bliku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Alveg sama hvaða spár eru skoðaðar, við virðumst ætla að festast hér með lægðardrag yfir eða í grennd við landið út júlí,“ segir í nýjustu og miður upplífgandi færslunni á Bliku, sem veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson heldur úti.

„Í það minnsta vottar ekki fyrir hæðinni góðu á milli Íslands og Noregs, þeirri þaulsetnu í fyrrasumar,“ heldur greining hans áfram. 

Í færslunni má sjá spákort úr fjögurra vikna spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá því á mánudagskvöld.

„Það fyrra er safnspá [fyrir vikuna] 17. til 24. júlí. Fjórir klasar eru markverðir (en ekki þessir rauðu tveir í miðjunni). Þeir sýna misjafnlega mikla lægðarsveigju yfir landinu. Hefur í för með sér far lægða og tíð úrkomusvæði sem koma úr suðvestri. Reyndar eru talsverðar líkur samkvæmt þessu á N-áttum (Reg1+Reg6),“ segir um fyrri safnspána hér að neðan. 

Mynd/Blika

„[Sú seinni] sýnir spá um frávik hita síðustu vikuna í júlí. Hitinn á mest öllu norðanverðu Atlantshafinu líður fyrir hringrásina og svalt loftið sem henni fylgir. Kortið á samt ekki að túlka þetta langt fram í tímann of bókstaflega fyrir sjálft landið. Munur á milli landshluta hefur þannig líka tilhneigingu til að „fletjast út“.“

Mynd/Blika



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert