Nefndin hafnar leyfi til skógræktar

Fyrsta óleyfisframkvæmdin sem kom upp er vegur í Dragafelli.
Fyrsta óleyfisframkvæmdin sem kom upp er vegur í Dragafelli. Ljósmynd/Aðsend

Skipulagsnefnd Skorradalshrepps leggur til að umsókn Skógræktarinnar um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á tveimur jörðum í hreppnum verði synjað. Skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins hefur stöðvað þrjár framkvæmdir Skógræktarinnar, svokallaðar óleyfisframkvæmdir. Skógræktin taldi sér heimilt að ráðast í framkvæmdina, eins og komið hefur fram. Afgreiðsla skipulagsnefndar verður lögð fyrir fund hreppsnefndar í dag.

Framkvæmdir stöðvaðar

Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps stöðvaði í byrjun síðasta mánaðar lagningu vinnuslóða Skógræktarinnar í hlíðum Dragafells og plægingu votlendis í landi sömu jarðar, Stóru-Drageyrar, sem var einnig talin gerð í óleyfi. Síðar í mánuðinum var plöntun birkis í landi Bakkakots í Botnsheiði stöðvuð. Allar framkvæmdirnar eru taldar óleyfisframkvæmdir. Talsmenn Skógræktarinnar töldu sér heimilt að ráðast í þessar framkvæmdir á landi sem þeir hafa yfirráð yfir.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert