Leituðu sátta utan dómstóla

Vítalía hafnar ásökunum um fjárkúgun og hótanir. Hún hefur þegar …
Vítalía hafnar ásökunum um fjárkúgun og hótanir. Hún hefur þegar mætt í skýrslutöku hjá lögreglu vegna máls sem hún höfðar gegn þremenningunum. Ljósmynd/Skjáskot Eigin konur

Vítalía Lazareva mætti í vikunni í skýrslutöku hjá lögreglu í tengslum við kæru hennar á hendur þremenningunum Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni.

Kolbrún Garðarsdóttir, réttargæslumaður Vítalíu, staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en Stundin greindi fyrst frá. Lögregla rannsakar nú málið.

Ástæða þess að málið dróst var sú að erfitt var að finna tíma sem hentaði Vítalíu og lögreglu, að sögn Kolbrúnar.

Það hafi verið misskilningur að Vítalía hafi ekki lagt fram kæru á hendur Ara, Hreggviðs og Þórði. 

Vítalía neitar ásökunum um fjárkúgun á hendur þeirra þriggja að sögn Kolbrúnar.

Reynt að leita sátta með fébótum

Var reynt að leita sátta utan dómstóla áður en kæran var lögð fram?

„Það áttu sér stað samskipti á milli aðila. Einhver af þeim bauð henni að koma á fund og fara yfir málið. Síðan var leitað leiða til þess að sætta málið, þ.e.a.s. með einhvers konar fébótum. Það var gert í einhver skipti og síðan náðu aðilar ekki samkomulagi,“ segir Kolbrún. Hún tekur fram að þremenningarnir hafi átt frumkvæðið að þessum viðræðum.

Engin skýrslutaka vegna ásakana um fjárkúgun

Vítalía hefur þá ekki farið í skýrslutöku vegna ásakana um fjárkúgun og hefur Kolbrún ekki séð kæru þess efnis. Lögmaður Hreggviðs staðfesti við mbl.is nýverið að Vítalía hafi verið kærð.

Kolbrún kveðst búast við því að rannsókn máls Vítalíu gegn þremenningunum gæti varað fram á haustið, jafnvel næsta ár. Mismunandi er eftir embættum hve lengi mál geta verið í rannsókn.

Vítalía steig fram í desember á síðasta ári og greindi þar meðal annars frá kynferðisofbeldi þriggja þjóðþekktra manna sem þegar hafa verið nefndir.

Mennirnir hyggjast kæra Vítalíu fyrir fjárkúgun, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins. Vítalía hefur kært þremenningana fyrir kynferðisbrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert