Björn nýr formaður Samtaka gagnavera

Björn Brynjúlfsson.
Björn Brynjúlfsson. Ljósmynd/Aðsend

Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis Data Center, er nýr formaður Samtaka gagnavera, DCI.

Kemur fram í tilkynningu að Björn hafi verið kjörinn formaður á aðalfundi samtakanna í síðustu viku en þá tók ný stjórn samtakanna til starfa. Ásamt Birni eru í stjórninni Gísli Kr. frá atNorh, Helgi Helgason frá Verne Global og Birkir Marteinsson frá Sýn.

Samtök gagnavera voru stofnuð árið 2012 sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins.

„Það er með ánægju sem ég tek að mér að leiða Samtök gagnavera. Mikil framtíðartækifæri eru til staðar í gagnaversiðnaði. Uppbygging gagnaversiðnaðar á Íslandi hefur styrkt upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnað hér á landi mikið á síðustu árum enda er um að ræða nátengdar atvinnugreinar.

Gagnaver gegna lykilhlutverki í stafrænum heimi og með 5G væðingunni og hröðum tæknibreytingum mun gagnamagn aukast mikið til framtíðar. Helstu samkeppnisþjóðir Íslands hafa sett sér skýr markmið um uppbyggingu gagnaversiðnaðar og við megum ekki verða eftirbátur í þeim efnum. Ég hlakka til að vinna með hagaðilum, DCI og Samtökum iðnaðarins að því að efla íslenskan gagnaversiðnað,“ er haft eftir Birni í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert