Sólveig nýr rektor MR

Sólveig Guðrún Hannesdóttir.
Sólveig Guðrún Hannesdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Sólveigu Guðrúnu Hannesdóttur í embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Sólveig hefur starfað sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík frá árinu 2008 og verið fagstjóri í líffræði og jarðfræði við skólann. Þá hefur hún átt sæti í skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennara frá árinu 2018 og í stjórn Samlífs, félags líffræðikennara frá árinu 2013. Á árunum 2004–2015 var hún matsaðili umsókna um styrki frá Rannís.

Kemur einnig fram að Sólveig er með B.S. próf í sameindalíffræði, frumulíffræði og örverufræði frá Háskóla Íslands og doktorspróf í ónæmisfræði frá University College í Lundúnum. Hún lauk námi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands árið 2007 og diplómaprófi í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla árið 2021. Sólveig var nýdoktor (Post-doc) við Landspítala – Háskólasjúkrahús árin 2001–2008 og sinnti á sama árabili kennslu við líffræðideild, hjúkrunarfræðideild og læknadeild Háskóla Íslands.

Þá segir í tilkynningu að sex hafi sótt um embættið og að einn hafi dregið umsókn sína til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert