Skeiðarárjökull hopaði um 400 metra

Á göngu á Skeiðarárjökli.
Á göngu á Skeiðarárjökli. Ljósmynd/Aðsend

Á síðasta ári hopuðu jökulsporðar víða um tugi metra en nokkrir brattir skriðjöklar gengu fram, mest Morsárjökull sem gekk fram um meira en 100 metra. 

Af þeim jöklum sem mældir eru af sjálfboðaliðum Jöklarannsóknafélags Íslands hopaði Skeiðarárjökull mest í fyrra eða um 400 metra þar sem mest var við austanverðan sporðinn. Þar slitnaði sporðurinn frá dauðísfláka.

Breiðamerkurjökull hopaði víða um eða yfir 150 metra þar sem kelfir af honum í Jökulsárlón. Þetta kemur fram í nýútkomnu fréttabréfi á vegum verkefnisins „Hörfandi jöklar“.

Rýrnun jökla er einhver skýrasti vitnisburður hérlendis um hlýnandi loftslag, að því er kemur fram á vef Veðurstofunnar. Jöklarnir hafa alls tapað um 250 km3 íss síðan 1995, sem er um 8% af heildarrúmmáli þeirra.

Fram kemur að afkoma stærstu íslensku jöklanna hafi verið neikvæð síðan 1995 með einni undantekningu, eða ársins 2015 þegar afkoman var jákvæð í fyrsta sinn í 20 ár.

Verkefnið „Höfandi jöklar“ er samvinnuverkefni Veðurstofu Íslands og Vatnajökulsþjóðgarðs, fjármagnað af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, og unnið í samvinnu við Jöklahóp Jarðvísindastofnunar Háskólans og Náttúrustofu Suðausturlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert