Hinsegin-diskó, Eurovision-farar og gleðiganga

Starfsfólk Snæfellsbæjar að loknum störfum. Á myndinni eru skipuleggjendur hátíðarinnar …
Starfsfólk Snæfellsbæjar að loknum störfum. Á myndinni eru skipuleggjendur hátíðarinnar í Snæfellsbæ, Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Matthías Páll varaslökkviliðsstjóri. Á mynd vantar Brynjar Vilhjálmsson. Ljósmynd/Aðsend

Hinseginhátíð Vesturlands verður haldin í annað sinn í Snæfellsbæ um helgina. Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi Snæfellsbæjar, segir mikla stemmingu vera í íbúum Snæfellsbæjar fyrir hátíðinni en í tilefni hátíðarinnar hefur verið máluð regnbogagata í Ólafsvík.

Regnbogagatan er við Ólafsvíkurkirkju og Ólafsvíkurenni sem gjarnan er kallað …
Regnbogagatan er við Ólafsvíkurkirkju og Ólafsvíkurenni sem gjarnan er kallað Enni af heimamönnum. Ljósmynd/Heimir Berg Vilhjálmsson

„Það er ofboðslega góð stemming í bænum fyrir hátíðinni og mikil gleði og tilhlökkun í fólki. Íbúar og fyrirtæki eru byrjuð að skreyta sveitarfélagið með regnbogalitum og er gaman að sjá hve margir taka þátt,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Páll Óskar, Systur og gleðiganga

Aðspurður segir hann heilmargt vera í gangi í tilefni hátíðarinnar í sveitarfélaginu.

„Til dæmis verða fyrstu opinberu tónleikar Systranna eftir Eurovision-ævintýrið þeirra á föstudaginn í Frystiklefanum á Rifi. Það verður miðnætursund í Lýsuhólslaugum og regnbogasundlaugardiskó í sundlauginni í Ólafsvík, skemmtidagskrá í Sjómannagarðinum í Ólafsvík og Hinsegin-diskó á veitingastaðnum Reks.

Þá verður Páll Óskar líka með ball á bæjarhátíðinni í Grundarfirði og verður boðið upp á hópferðir á það frá Ólafsvík. Hápunktur hátíðarinnar verður svo auðvitað Gleðigangan sem hefst um tvö leytið á laugardeginum í Ólafsvík. Gangan fylgir Ólafsbraut og beygir upp Kirkjutún, en þar er einmitt ný og glæsileg regnbogagata sem Snæfellsbær hafði frumkvæði að því að mála í tilefni hátíðarinnar.“

Hinseginhátíð Vesturlands er haldin daganna 22. til 24. júlí.
Hinseginhátíð Vesturlands er haldin daganna 22. til 24. júlí.

Ný regnbogagata Snæfellsbæjar

Spurður nánar út í regnbogagötuna segir hann götuna vera glænýja og að framtakið hafi nú þegar vakið mikla athygli, bæði hjá íbúum og gestum. Hann segir fjölmarga ferðamenn hafa gefið sig á tal við skippuleggjendur, tekið myndir af sér við götuna og skapað minningar þrátt fyrir að gatan sé enn ekki kominn „á kortið“.

Heiður Malín aðstoðaði við málningarvinnu.
Heiður Malín aðstoðaði við málningarvinnu. Ljósmynd/Aðsend

„Regnbogagatan er á fallegum stað í Ólafsvík þar sem hún er við kirkjuna, Ólafsvíkurenni, bæjarfossinn og höfnina. Það má í raun segja að gatan hafi alla burði til að verða ákveðið kennileiti fyrir Ólafsvík og vonandi er hún komin til að vera.“

Regnbogagatan er staðsett á besta stað í Ólafsvík. Ef gengið …
Regnbogagatan er staðsett á besta stað í Ólafsvík. Ef gengið er niður götuna að höfninni þá má sjá pakkhúsið sem byggt var árið 1844. Þá eru veitingastaðirnir Sker og Reks í um 200 metra fjarlægð frá regnbogagötunni. Ljósmynd/Heimir Berg Vilhjálmsson

Sveitarfélagið styður sjálfsögð mannréttindi

Að sögn Heimis hefur hátíðin mikla þýðingu fyrir Snæfellsbæ, en hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra í Borgarnesi. 

„Það er okkur mikill heiður að fá að halda hátíðina með félaginu Hinsegin Vesturland sem var stofnað í fyrra til að auka sýnileika, stuðning og fræðslu um þetta málefni. Þau eru ævinlega öll velkomin til Snæfellsbæjar og sveitarfélagið styður sjálfsögð mannréttindi allra og margbreytileika mannlífsins.“

Ljósmynd/Heimir Berg Vilhjálmsson

Að endingu hvetur Heimir íbúa á Vesturlandi og víðar til að koma vestur og taka þátt í gleðinni.

„Veðurspáin á Snæfellsnesi lítur vel út fyrir helgina, málefnið er gott og hér er auðvitað hægt að gera sér glaðan dag á fjölmörgum veitingahúsum og hvergi betra að vera í góðra vina hópi á fallegum og björgum sumardegi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert