Lítil flugvél nauðlenti í Tungudal sem er sunnan við Öxnadalsheiði á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
Gunnar Rúnar Ólafsson, varaslökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri, segir að verið sé að senda björgunarsveitir á vettvang og að landhelgisgæslan sé á leiðinni.
„Samkvæmt okkar upplýsingum eru mennirnir óslasaðir og komnir út úr vélinni. Þeir bíða eftir aðstoð,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Uppfært kl. 21:23:
Mennirnir tveir voru sóttir af þyrlu landhelgisgæslunnar, heilir á húfi. Flogið var með þá til Akureyrar. Aðgerðum er því lokið. Ekki fengust upplýsingar um ástand flugvélarinnar né hvað olli því að vélinni var nauðlent.