Nýr sveitastjóri í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi

Björn og oddviti sveitastjórnar Sigurður Þór Guðmundsson.
Björn og oddviti sveitastjórnar Sigurður Þór Guðmundsson. Langanesbyggð.is

Björn S. Lárusson hefur verið ráðinn sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps frá og með 1. september 2022.

Greint er frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins en þar kemur fram að fjórir hafi sótt um starfið sem var auglýst í júní. 

Um Björn Lárusson segir á vefnum: 

„Björn er með B.Sc. próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og markaðsmál og nam skipulagsmál ferðamála í Lillehammer í Noregi. Auk þess hefur hann stundað nám í samskiptum, almannatengslum og verkefnastjórnun. Björn er menntaður leiðsögumaður og hefur starfað sem slíkur í fjölmörg ár.

Hann hefur sinnt starfi skrifstofustjóra í Langanesbyggð og verið þar staðgengill sveitarstjóra.

Björn hefur víðtæka stjórnunar- rekstrar- og verkefnastjórnunarreynslu m.a. í tengslum við uppbyggingu hótela hérlendis og erlendis. Hann var framkvæmdastjóri samfélagssamskipta og almennatengsla hjá Bechtel á Reyðarfirði í tengslum við uppbyggingu álvers Alcoa. Björn var markaðs- og atvinnufulltrúi Akraneskaupstaðar um árabil og kom þar meðal annars að stefnumótun og verkefnum í tengslum við opnum Hvalfjarðarganga. Einnig var Björn fréttamaður, fréttaritari og dagskrárgerðarmaður hjá Rúv í 12 ár.

Björn er kvæntur Eydísi Steindórsdóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert