Óljóst hvort brúin muni standa af sér vatnavextina

Unnið er að nýrri brú á svæðinu.
Unnið er að nýrri brú á svæðinu. Ljósmynd/Vegagerðin

Búist er við miklum vatnavöxtum undir Eyjafjöllum og er óljóst hvort brú, sem notuð er til bráðabirgða í stað brúar við Jökulsá á Sólheimasandi, standi af sér vatnavextina.

Vegna þessa vinnur Vegagerðin nú að því að dýpka farveg undir brúnni og undirbúa aðrar aðgerðir til þess að verja brúna, að því er fram kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar.

Brúin er notuð til bráðabirgða á meðan framkvæmdir við nýja brú á svæðinu standa enn yfir. 

Umferð hleypt á nýju brúna ef hætta er á ferðum

Komi til þess að bráðbirgðabrúnni sé hætta búin verður umferð  á Hringvegi um Jökulsá á Sólheimasandi fyrir austan Skóga hleypt á nýju brúna. 

Umferðinni verður stýrt með ljósum til skiptis í hvora átt í ljósi þess að brúin er ekki fullgerð og án handriðs. Hraði verður lækkaður tímabundið vegna þessara aðstæðna biður Vegagerðin vegfarendur um að virða það.

Brýrnar tvær yfir Jökulsá á Sólheimasandi -
Brýrnar tvær yfir Jökulsá á Sólheimasandi - mbl.is/Sigurður Bogi
Brúarhandrið er ekki komið upp á nýju brúnni.
Brúarhandrið er ekki komið upp á nýju brúnni. Ljósmynd/Vegagerðin
Ljósmynd/Vegagerðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert