Óvenjuleg snjókoma um hásumar

Ferðamenn í snjókomu í mars síðastliðnum. Ekki er útilokað að …
Ferðamenn í snjókomu í mars síðastliðnum. Ekki er útilokað að snjóa muni á fólk um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir það mjög óvenjulegt að það snjói á þessum árstíma, eins og mun líklegast gerast á hálendinu og norðan við Vatnajökul í dag samkvæmt veðurspám.

Búist er við snjókomu á hálendinu norðan Vatnajökuls vegna lægðar sem fer austanlands í dag og dýpkar fyrir austan og norðaustan að sögn Einars.

„Með lægðinni rignir og jafnvel snjóar á öðrum stöðum,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Á Möðru­dals­ör­æf­um seint á sunnu­dag og um nótt­ina er einnig hætt við krapa og snjó.

Ekki óalgengt á öðrum tímum sumars

Spurður hvort svona snjókoma sé ekki óvenjuleg á þessum tíma svarar Einar því játandi.

„Þetta er ekkert óalgengt snemma sumars eða þegar liðið er á sumarið, en ég verð nú að segja  að þetta er frekar óvenjulegt yfir hásumarið.“

Hann bendir þó á að landverðir og skálaverðir á hálendinu myndu aðspurðir segja fólki að gera ráð fyrir öllu veðri alltaf. 

Í lokin tekur Einar fram að það þyrfti að fara þó nokkur ár aftur í tímann til að finna svipaða snjókomu á þessum tíma árs.

Fyrr í dag fór hann yfir veðrið um þessa verslunarmannahelgi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert