1.600 skjálftar frá hádegi í dag

Hraunbreiða nærri Fagradalsfjalli.
Hraunbreiða nærri Fagradalsfjalli. Photo/Donatas Arlauskas

Um 1.600 jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá því að jarðskjálftahrina hófst skömmu eftir hádegi í dag. 

Um klukkan korter í eitt í dag varð skjálfti upp á þrjá að stærð og hófst með því hrina sem enn stendur yfir. Fyrr um daginn hafði verið skjálftavirkni á svæðinu en hún var minniháttar.

391 skjálfti á milli 1 og 2 að stærð, 142 skjálftar á milli 2 og 3 að stærð og 34 skjálftar yfir 3 að stærð. Sá stærsti klukkan 16.52, 4,4 að stærð og tveir til viðbótar sem mældust stærri en 4. 

Klukkan þrjú í dag var tilkynnt um óvissustig almannavarna vegna skjálftahrinunnar sem talin er stafa af kvikuhlaupi.

Hægst hefur á virkni

„Hægst hefur á jarðskjálftavirkninni. Það þarf ekki að vera merki um neitt, þetta getur alveg tekið sig upp aftur án mikils fyrirvara. Við bíðum og sjáum,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. 

Áfram verður hægt að fylgjast með beinu streymi í vefmyndavélum mbl.is af gosstöðvunum í Fagradalsfjalli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert