Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi í Krýsuvík vegna flugumferðar, …
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi í Krýsuvík vegna flugumferðar, en mesta skjálftavirknin er norðaustan við Fagradalsfjall. mbl.is

Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. 

Er þetta ákvörðun ríkislögreglustjóra í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. 

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi í Krýsuvík vegna flugumferðar, en mesta skjálftavirknin er norðaustan við Fagradalsfjall.

Huga að lausa- og innanstokksmunum

Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. 

Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Aukið eftirlit með atburðarásinni

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.

Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert