Frestuðu tillögu um einkaþotur

Meirihlutinn frestaði tillögu Lífar.
Meirihlutinn frestaði tillögu Lífar. mbl.is/Árni Sæberg

Meirihluti borgarráðs frestaði í vikunni tillögu þess efnis að beina umferð einkaþotna og þyrluflugi annað en um Reykjavíkurflugvöll. 

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, lagði fram tillöguna.

Alexandra Briem, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, sagði þó í samtali við Rúv að það skyti skökku við að lítið kosti að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli.

Fela borgarstjóra að semja um umferð annars staðar

Lagði Líf til að fela borgarstjóra að ganga til samninga við samgönguyfirvöld um að beina umferð á einkaþotum og þyrluflugi annað en um Reykjavíkurflugvöll. Slíkar breytingar myndu hafa margs konar jákvæð áhrif á borgina, íbúa hennar og umhverfið.

„Hljóð- og lofmengun og almennt ónæði yrði minna, öryggi íbúa í miðborginni og í grennd við flugvöllinn myndi aukast og svo samræmist aðgerðin markmiðum borgarinnar í umhverfis- og loftlagsmálum svo fátt eitt sé nefnt,“ segir í tillögunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert