Tilkynnt um tjón í Grindavík

Frá Þorbirni, nærri Grindavík á Reykjanesskaga.
Frá Þorbirni, nærri Grindavík á Reykjanesskaga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilkynnt hefur verið um tjón á innanstokksmunum í Grindavík eftir stóran jarðskjálfta á Reykjanesskaga í dag. 

Ekki hafa tilkynningar um slys á fólki borist almannavörnum, er kemur fram í tilkynningu. 

Enn er óvissustig almannavarna í gildi, sem lýst var yfir um miðjan dag í gær, eftir að yfirstandandi skjálftahrina hófst. 

„Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert