Yfir tíu þúsund skjálftar mælst í hrinunni

Fagradalsfjall rís fyrir miðju handan Sandfells í forgrunni.
Fagradalsfjall rís fyrir miðju handan Sandfells í forgrunni. mbl.is/Skúli Halldórsson

Enn mælist mikil jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga og hafa yfir tíu þúsund skjálftar mælst síðan hrinan hófst á hádegi á laugardag.

Þetta kemur fram í yfirliti frá Veðurstofu Íslands en þar segir að þó dregið hafi úr stærri skjálftum, um og yfir 4 stig, síðan á hádegi mælist enn fjöldi minni skjálfta á svæðinu. 

Þeim hefur þó fækkað nokkuð seinni partinn. Virknin er sem fyrr aðallega bundin við nyrðri hluta gangsins sem myndaðist fyrir gos í fyrra.

Stærsti skjálftinn þar síðan á miðnætti varð þar 06:27 í morgun um 4,7 að stærð, og eins og áður hefur komið fram benda GPS mælingar til þess að nýtt innskot sé að myndast þar, líkt og í desember, en mun minna en það sem varð í febrúar og mars á síðasta ári.

Beðið er frekari gagna til að meta stærð innskotsins.

Þá hefur allnokkur virkni mælst vestan Þorbjarnar, við suðvestanvert Kleifarvatn og norðarlega í Núpshlíðarhálsi. Á þessum slóðum mældust einnig nokkrir skjálftar um og yfir 4 að stærð frá miðnætti og fram til kl. 11 í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert