Litakóða breytt fyrir Grímsvötn

Frá Grímsvötnum. Mynd úr safni.
Frá Grímsvötnum. Mynd úr safni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Veðurstofan hefur breytt litakóða fyrir Grímsvötn í gulan.

Er þetta gert eftir að nokkrir jarðskjálftar stærri en 1,0 að stærð mældust þar síðdegis í dag.

Stærsti skjálftinn mældist 3,6 að stærð kl. 14.24 og þykir jarðskjálftavirkni umfram eðlilega bakgrunnsvirkni.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að fylgst verði náið með virkninni í Grímsvötnum.

Jökulhlaup varð úr Grímsvötnum seint á síðasta ári og mynduðust sigkatlar yfir eldstöðinni, án þess þó að til eldgoss kæmi.

Kröftugt eldgos árið 2011

Þessi virkasta eldstöð Íslands hefur verið komin að því að gjósa í jafnvel tvö ár. Hvort tveggja þrýst­ing­ur að ofan, og þensla að neðan, mæl­dust meiri í nóvember síðastliðnum en fyr­ir síðasta eld­gos, árið 2011, sem þó var óvenju öfl­ugt.

Kviku­söfn­un í eld­stöðinni virt­ist þegar árið 2020 hafa náð sama marki og fyr­ir kröft­uga eld­gosið árið 2011, ef mið er tekið af þenslu­mæl­ing­um í Gríms­fjalli. Síðan þá hef­ur fjallið þan­ist meira út.

Eld­gos í eld­stöðinni hafa verið tal­in geta varað frá nokkr­um dög­um til sjö mánaða. Síðasta gos, sem var mjög kröft­ugt, varði í aðeins sjö daga. Það fylgdi ekki jök­ul­hlaupi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert