Myndskeið: Sjáðu eldana í Geldingadölum í nótt

mbl.is greindi í nótt frá reyk sem steig upp frá jörðu skammt vest­ur af hraun­inu sem fyll­ir Geld­inga­dali.

Full­trú­ar frá al­manna­vörn­um og lög­reglu fóru í þyrluflug um klukk­an eitt í kvöld til að kanna aðstæður. Í ljós kom að um sinubruna hafi verið að ræða.

Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segist gott að fá niðurstöðu um eldana í stað óvissunnar sem ríkti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert