Viðbragðsáætlun hefur ekki verið virkjuð

Frá flugskýli Landhelgisgæslunnar í júlí.
Frá flugskýli Landhelgisgæslunnar í júlí. mbl.is/Árni Sæberg

Viðbragðsáætlun almannavarna hefur ekki verið virkjuð vegna ljósbjarma sem sést í reyknum við Fagradalsfjall, þvert á það sem fréttastofa ríkisútvarpsins greindi frá skömmu eftir miðnætti.

Þetta staðfestir Sólberg Svanur Bjarnason, deildarstjóri almannavarna.

Enn er verið að skoða og meta stöðuna og er það gert í nánu samstarfi við Veðurstofuna, að sögn Sólbergs Svans, en fulltrúar almannavarna ásamt fulltrúum lögreglu eru nú á leið á vettvang til að kanna aðstæður, um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Ábendingar tóku að berast

Skömmu fyrir miðnætti hóf fjöldi ábendinga að berast mbl.is vegna blossa sem virðast koma upp með reyknum við Fagradalsfjall.

Hulda Rós Helgadóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands sagði í samtali við mbl.is að verið væri að fylgjast með stöðunni og að búið væri að láta almannavarnir vita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert