Fjórir í varðhald vegna fíkniefnainnflutnings

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjórir einstaklingar voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 17. ágúst í þágu rannsóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir að fjórmenningarnir hafi verið handteknir í sameiginlegum aðgerðum lögreglu í gær en að þeim komu embætti lögregluliðanna á  höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.

Þá segir í tilkynningunni að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert