Sjö umsækjendur sóttu um tvö embætti héraðsdómara sem dómsmálaráðuneytið auglýsti nýlega laus. Annars vegar var auglýst embætti dómara með starfsstöð við Héraðsdóm Reykjaness og hins vegar embætti dómara með starfstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Dómararnir munu þó báðir sinna störfum við alla héraðsdómstóla, fer það eftir ákvörðun dómstólasýslunnar, að því er fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Umsækjendurnir sóttu allir um bæði embættin en skipað verður í þau frá 1. október. Umsóknarfresturinn rann út þann 2. ágúst.
Umsækjendur eru eftirfarandi: