Mistök að nafngreina Elínborgu

Gleðiganga Hinsegin daga fór fram síðustu helgi.
Gleðiganga Hinsegin daga fór fram síðustu helgi. mbl.is/Kristvin Guðmundsson

Stjórn Hinsegin hefur nú beðist afsökunar á því að hafa nafngreint Elínborgu Hörpu og Önundarburs, í aðdraganda handtöku hennar í gleðigöngu Hinsegin daga árið 2019. 

Afsökunarbeiðnin var birt á heimasíðu samtakanna. 

„Á fundi Hinsegin daga og lögreglu í ágúst 2019 voru aðilar, sem mótmælt höfðu á Opnunarhátíð Hinsegin daga nafngreindir. Síðar var nafngreiningin notuð sem rökstuðningur fyrir harkalegri og ástæðulausri handtöku eins aðilans: Elíar/Elínborgar Hörpu og Önundarburs.“

Vildu tryggja öryggi

Stjórnin segir að þeim sé ljóst að það hafi verið mistök að nafngreina einstaklinga í þessum samskiptum, og harma það. Sama gildi um sein viðbrögð samskipta- og stuðningsleysi af hálfu Hinsegin daga í kjölfar handtökunnar.

Að baki samskiptum Hinsegin daga við lögreglu hafi ekki legið annar ásetningur en sá að leita ráða um hvernig best mætti tryggja öryggi meðan á Gleðigöngunni stæði.

Miður að afstaðan komi svo seint fram

„Á öllu þessu biðjumst við innilega afsökunar og áréttum að okkur þykir miður að þessi afstaða hafi ekki komið fram fyrir gleðigöngu Hinsegin daga 2022.“

„Það er okkur algjört keppikefli að skapa vettvang þar sem allt hinsegin fólk upplifir sig öruggt og velkomið. Það er einlægur ásetningur okkar sem störfum fyrir félagið að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig, um leið og við höldum áfram að leggja okkar lóð á vogaskálarnar til að auka sýnileika og styðja við áframhaldandi réttindabaráttu alls hinsegin fólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert