Næturfrost í Víðidal

Veðurfræðingur segir ekki óalgengt að það frysti í Víðidal um …
Veðurfræðingur segir ekki óalgengt að það frysti í Víðidal um nætur. Haraldur Jónasson/Hari

Næturfrost gerði í Víðidal í nótt. Vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir það ekki óalgengt að næturfrost verði á þeim stað í ágúst. 

Nú sé farið að dimma og meðan kalt loft er yfir landinu megi búast við að það fari að frysta um nætur. Það þykir þó snemmt ef næturfrost mælist víðar í Reykjavík á næstu dögum. 

Annars staðar í Reykjavík var hiti rétt yfir frostmarki. 

Á Sandskeiði og á Hólum í Dýrafirði mældist hiti undir frostmarki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert