Séra Gísli Gunnarsson vígður vígslubiskup

Eftir vígsluna var boðið upp á veislukaffi.
Eftir vígsluna var boðið upp á veislukaffi. Björn Björnsson

Séra Gísli Gunnarsson var vígður til embættis vígslubiskups í Hólaumdæmi við hátíðlega athöfn í Hóladómkirkju á Hólahátíð í gær.

Séra Gísli Gunnarsson, áður sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli, var kjörinn vígslubiskup í sumar. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, vígði sr. Gísla. Kirkjukórar Glaumbæjarprestakalls og Hóladómkirkju sungu og Bryndís Björgvinsdóttir og Brjánn Ingason léku á fagott og selló.

Organistar voru Jóhann Bjarnason og Stefán Gíslason. Eftir vígsluna var boðið upp á veislukaffi á Kaffi Hólum.

Fráfarandi vígslubiskup, sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir, lætur formlega af störfum 1. september eftir tíu ára þjónustu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert