Söfnuðu 130 þúsund kr. fyrir úkraínskt flóttafólk

Krakkarnir söfnuðu 130 þúsund krónum.
Krakkarnir söfnuðu 130 þúsund krónum.

Fjórir duglegir krakkar söfnuðu 130 þúsund krónum sem þau gáfu Rauða krossinum til styrktar flóttafólki frá Úkraínu.

Börnin, sem heita Sigrún, Andri, Emma og Karen, búa í Ennishvarfi í Kópavogi en þau náðu að safna þessari óvenju háu upphæð með því að vera sérlega dugleg og úrræðagóð, að því er segir í tilkynningu Rauða krossins.

Seldu armbönd og happdrættismiða

Byrjuðu þau á því að fá posa lánaðan hjá Saltpay svo fólk gæti borgað þeim með korti og svo héldu þau tvær sirkussýningar sem þau seldu inn á og seldu meira að segja veitingar í hléi.

Þá bjuggu krakkarnir til armbönd og notuðu posann til þess að selja þau nálægt heimilum sínum, auk þess að ganga um hverfið sitt og selja miða í happdrætti en síðast en ekki síst söfnuðu þau tómum drykkjarumbúðum í hverfinu sínu sem þau fóru með í Sorpu.

Fólk sem hefur áhuga á að taka þessa kláru krakka til fyrirmyndar geta stutt hjálparstarf Rauða krossins á ýmsa vegu í gegnum heimasíðu Rauða krossins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert