Boða allsherjar úttekt á tryggingamálum

Iðgjöld hér á landi eru fimmfalt dýrari en í Svíþjóð …
Iðgjöld hér á landi eru fimmfalt dýrari en í Svíþjóð og Bretlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Neytendasamtökin hyggjast láta gera allsherjar úttekt á tryggingum á Íslandi og lagaumhverfi þeirra.

Breki Karlsson, formaður samtakanna, segir í samtali við Fréttablaðið, að borið verði saman lagaumhverfi hér á landi og annars staðar. Þar að auki verði kannað hvort verðmunurinn stafi af því að íslensk lög setji þyngri byrði á tryggingafélög vegna bóta, en lög annarra landa. 

Ábyrgðar og kaskótrygging er um fimmfalt dýrari hér á landi en í Svíþjóð og Bretlandi, að því er fram kemur í grein blaðsins. 

Úttektin kostar 12 til 15 milljónir króna

Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri trygginga hjá TM, segir þennan mikla verðmun koma sér á óvart, en bótakerfið í þessum löndum sé mjög frábrugðið íslensku bótakerfi. 

Haft er eftir Runólfi Ólafssyni, framkvæmdastjóra FÍB, að óeðlilega há iðgjöld hér á landi stafi af fákeppni. Þá telur hann Seðlabanka Íslands bregðast skyldu sinni til eftirlits með starfsemi og verðskrá tryggingafélaganna. 

Áætlað er að úttektin kosti Neytendasamtökin á bilinu 12 til 15 milljónir króna, en vonir eru bundnar við að það fjármagn fáist frá ríkinu og verkalýðsfélögum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert