Gosstöðvunum verður lokað í nótt

Ekkert útivistarveður verður á morgun, miðvikudag.
Ekkert útivistarveður verður á morgun, miðvikudag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gosstöðvarnar í Meradölum hafa verið opnar í dag en þeim verður lokað í nótt klukkan 4 vegna slæmrar veðurspár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 

Gul veðurviðvörun er í gildi frá klukkan 6 í fyrramálið á Suðurlandi og frá klukkan 7 fyrir Faxaflóa og Miðhálendið. Viðvörunin gildir fram yfir hádegi, en ekki hefur verið gefið út hvenær gosstöðvarnar muni opna aftur.

Á vef Veður­stofu Íslands seg­ir að bú­ast megi við hvassviðri eða stormi og tals­verði rign­ingu. Þá verði ekk­ert úti­vist­ar­veður á meðan veðrið gangi yfir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert