Mikil fjölgun í stétt fasteignasala

Það sem af er ári hafa 56 leyfi verið veitt …
Það sem af er ári hafa 56 leyfi verið veitt nýjum fasteignasölum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Það sem af er árinu 2022 hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út leyfi til 56 einstaklinga til að starfa sem löggiltir fasteigna- og skipasalar. Allt eru þetta nýir fasteignasalar.

Að auki hafa nokkrir einstaklingar fengið leyfi sín afhent að nýju, eftir að hafa lagt þau inn tímabundið. Á sama tíma hafa 19 einstaklingar lagt inn leyfi sín á meðan þeir starfa ekki í faginu. Þetta kemur fram í tilkynningum sýslumanns í Lögbirtingablaðinu.

Stefnir í að 90 hefji nám nú

Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á nám til löggildingar fasteigna- og skipasala. Kennsla á næstu námsbraut hefst síðar í þessum mánuði og er fullbókað í námið, að því er fram kemur á heimasíðu Endurmenntunar.

Stefnir í að um 90 manns hefji nám í haust. Síðastliðið vor útskrifuðust 92 úr náminu.

Í Félagi fasteignasala eru um 330 félagsmenn. Innan félagsins eru langflestir löggiltir fasteigna- og skipasalar á Íslandi

Nánar í Morgunblaðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert