Götum lokað vegna Reykjavíkurmaraþons

Kort af hlaupaleiðunum.
Kort af hlaupaleiðunum. Kort/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram á morgun mun hafa töluverð áhrif á umferðina og loka þarf götum á ákveðnum tímum af þeim sökum.

„Vegfarendur eru því beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Greinargóðar upplýsingar um lokanir er að finna á vefsíðu mótshaldara og er fólk hvatt til að kynna sér þær.

Hlaupnar verða fjórar vegalengdir: maraþon, hálfmaraþon, 10 km og skemmtiskokk. Ræst verður á eftirfarandi tímum: 8.40, 9.40 og 12.

Búist er við að um átta þúsund hlauparar taki þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, sem fer nú fram í 37. sinn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert