Búðu til þína eigin dagskrá fyrir Menningarnótt

Hægt er að búa til sína eigin dagskrá í appinu …
Hægt er að búa til sína eigin dagskrá í appinu og stíla inn á sitt áhugasvið.

Gestum Menningarnætur býðst nú að búa til sína eigin menningarnæturdagskrá í Gjugg-appinu og fá þannig kort og upplýsingar um hvert þeir vilja fara og hvenær.

Appinu er ætlað að veita upplýsingar um alla viðburði á öllum sviðum. Þórarinn Stefánsson hjá Mobilitus, sem býr til Gjugg, segir eins gott að geta stytt lista yfir viðburðina og stílað inn á sitt áhugasvið, enda sé vitað um 350 atriði í dag og í kvöld.

„Reykjavíkurborg veitti okkur góðfúslega aðgang að viðburðagrunni sínum svo við gætum bætt þeim inn í safnið hjá okkur, sem núna telur um 5.000 framtíðarviðburði á landinu og rétt innan við 400 þúsund viðburði á heimsvísu,“ segir Þórarinn.

„Svo bætum við við öllu hinu sem borgin veit ekki af,“ bætir hann við.

Þórarinn segir appið auðvelda aðgengi fólks á litlum markaðssvæðum að …
Þórarinn segir appið auðvelda aðgengi fólks á litlum markaðssvæðum að upplýsingum. Ljósmynd/Mobilitus

Þjónusta markaði sem svarar ekki kostnaði að sinna

Kristinn Jón Ólafsson borgarfulltrúi segir borgina hafa markað sér stefnu um opin gögn til að nýsköpun sem þessi geti átt sér stað. „Þarna er sett fram ný þjónusta fyrir borgarbúa án kostnaðar eða fyrirhafnar fyrir borgina sem er nákvæmlega það sem stefnt var að,“ segir Kristinn.

Mobilitus hefur einbeitt sér að rekstri miðasölukerfa og markaðssetningar viðburða víða um heim undanfarinn áratug. Gjugg-appið og viðburðagrunnurinn sem það byggir er hluti af vöruþróun sem ætlað er að auðvelda aðgengi fólks á litlum markaðssvæðum að upplýsingum um eitthvað skemmtilegt að gera í nærumhverfinu.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2022/08/20/ekki_missa_af_thessu_a_menningarnott/

„Við teljum okkur vera búin að finna leið til að veita góða þjónustu á mörkuðum sem enginn telur svara kostnaði að sinna,“ segir Þórarinn hjá Mobilitus. Með því að því að nýta gervigreind og máltækni til að flokka upplýsingarnar sem inn í kerfið koma frá stórum alþjóðlegum miðasölukerfum og viðburðagrunnum, eins og hjá borginni, sé hægt að miðla þeim aftur út til fólks í gegnum öpp eins og Gjugg og til staðbundinna vefmiðla. 

„Það styrkir stoðir svæðisbundinna miðla í baráttunni við kerfi eins og Facebook og hjálpar viðburðahöldurum að fá fleiri áhorfendur en ella,“ segir Þórarinn jafnframt.

Gjugg appið er ókeypis og má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert