Lögreglan fór vopnuð á vettvang

Lögreglan á Norðurlandi vestra vopnaðist áður en hún fór í útkall sem barst kl. 5:30 í morgun, en þá hafði borist tilkynning um að skotvopni hefði verið beitt gegn tveimur einstaklingum í heimahúsi á Blönduósi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 

„Lögregla vopnaðist áður en farið var á vettvang, auk þess sem annað viðbragð innan lögreglu var virkjað, þar á meðal vopnuð sérsveit. Í ljós kom að skotvopni hafði verið beitt gegn tveimur einstaklingum, þar sem einn var látinn og annar særður. Aukinheldur fannst meintur gerandi skotárásarinnar einnig látinn á vettvangi.“

Þá segir lögreglan, að í framhaldi hafi verið hlúð að þeim særða og vettvangur tryggður. Þá var lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra gert viðvart um málið en rannsókn sakamálsins er í höndum hans.

Annað viðbragð var einnig virkjað, þar á meðal áfallateymi Rauða krossinn í umdæminu.

„Hinum slasaða var komið með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Á þessu stigi er ekki vitað um líðan hans. Tekið skal fram að ekki kom til þess að lögreglan þyrfti að grípa til vopna vegna atviksins. Tveir eru í haldi lögreglu vegna málsins. Að svo stöddu mun lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra ekki tjá sig um málið sem er á viðkvæmu stigi. Gert er ráð fyrir að embættið muni senda frá sér aðra fréttatilkynningu kl. 18 í dag,“ segir í tilkynningu sem Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, hefur sent frá sér vegna málsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert